Tónlistarhátíðin Úlfaldi úr Mýflugu rís á ný eftir 10 ára dvala! Dagana 3. og 4. júlí verðum við með tveggja daga dagskrá í Mývatnssveit, bæði í Jarðböðunum við Mývatn og í Flugskýli Mýflugs.
Laugardagskvöldið 4. júlí fer fram í Flugskýli Mýflugs. Fram koma:
STEFAN ELI
CELL7
DIMMA
Vegna fjöldatakmarkana þarf að tryggja sér miða á tix.is, frítt er inn á hátíðina á laugardagskvöldinu en við tökum að sjálfsögðu á móti frjálsum framlögum sem hægt er að kjósa að borga strax við afgreiðslu miða.