Finndu leiðina til okkar! #NjótumSaman
Norðurljósahöfuðborg Íslands
Fjögurra skóga hlaupið fer fram í suðurhluta Fnjóskadals laugardaginn 24. júlí. Öll hlaupin enda á sama stað, á íþróttavelli umf. Bjarma sem staðsettur er við þjóðveg 1, austan brúarinnar yfir Fnjóská. Keppendur mæta á Bjarmavöllinn þar sem boðið verður upp á akstur á upphafsstaði.
Ræst verður í hlaupin á mismunandi tíma, lengstu vegalengdina fyrst. Allar vegalengdirnar sameinast við gróðrarstöðina í Vaglaskógi síðustu 4,3 km. Rétt er að minna á að Fjögurra skóga hlaupið var valið besta utanvegahlaupið árið 2014 í árlegri kosningu hlaupara á hlaup.is.
Hægt verður að velja um fjórar vegalengdir í ár, en það eru 4,3 km, 10,3 km, 17,6 km og 30,6 km
Þeir skógar sem hlaupið er eftir eru: Vaglaskógur, Lundsskógur, Þórðarstaðaskógur og Reykjaskógur.
Skráning í hlaupið fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu og lýkur föstudaginn 23. júlí kl 16:00. Fyrir þá sem vilja skrá sig/greiða beint hafið samband við Steinar í sima 8569669 eða steinarkarl_91@hotmail.com.
4,3 km skemmtiskokk
10,3 km
17,6 km
30,6 km
Allir keppendur fá þátttökupening og verðlaunapeningar verða veittir fyrir þrjú efstu sætin, karla og kvenna í hverri vegalengd.
Keppendur eru fluttir á upphafsstaði, drykkir verða á drykkjastöðum sem eru t.d 8 í 30.6 km, tímatöku-númer, brautarmerkingar, öryggisgæsla er á leiðinni. Boðið verður upp á hressingu á leiðarenda.
Gæsla verður við hlaupið og munu félagar úr bsv. Þingey fylgja keppendum eftir. Þátttakendum skal þó bent á að þeir hlaupa á eigin ábyrgð.
Ágóði af hlaupinu ef einhver verður mun renna til bsv. Þingeyjar til kaupa á búnaði til sveitarinnar.
Hægt er að kaupa tjaldstæði á Bjarmavelli. Þar er öll aðstaða mjög góð.
Upplýsingar gefur Birna í síma 848-3547.
Norðurljósahöfuðborg Íslands
Visit Mývatn
Mývatnsstofa ehf
660 Mývatn
Ísland
info@visitmyvatn.is