21. Rauðafell

Nánari upplýsingar, hnit og myndir af gönguleiðinni má finna hér: Wikiloc | Rauðafell Trail

Gönguleiðin að Rauðafelli er farin frá veginum en keyrt er fram hjá bæjunum Bjarnastöðum og Rauðafelli í Bárðardal áleiðis upp hæðina þar til komið er að vegaslóða. Hægt er að ganga slóðann upp fellið eða fara beint upp en varast þarf mýrlendi á leiðinni. Leiðin er nokkuð létt eftir jeppaslóða og upp á toppi fellsins er frábært útsýni til allra átta.