5. Stóragjá - Grjótagjá - Hverfjall - Dimmuborgir

Leiðin liggur frá vegamótum þjóðvegarins austan við vatnið og tekur gangan 2½ - 4 tíma. Milli Stórugjár og Grjótagjár er auðveld ganga (30-40 mín). Frá Grjótagjá að Hverfjalli (Hverfelli) er auðveld leið ef farið er með gát. Stígur liggur á Hverfjall (Hverfell) að norðvestan, aflíðandi og að sunnan er brött og fremur erfið slóð. Frá Hverfjalli (Hverfelli) að bílastæði við Dimmuborgir er 30-50 mín. ganga.