Árlega ruslahreinsunin - The Annual Clean Up Campaign

Hin árlega ruslahreinsun Fjöreggs og Skútustaðahrepps verður 2020 mánudaginn 25.maí - klukkan 16:30 - Fyrsti dagur hreyfiviku UMFÍ. Á hverjum stað er forsvarsmaður félagsins/félaganna beðinn um að skipuleggja
hreinsunina og ná í ruslapoka og hanska á skrifstofu hreppsins þann dag fyrir 15:00. Við hvetjum einnig fólk til að koma með eigin vinnuhanska.
Gámavöllurinn á Grímstöðum verður opinn 17.30-19.00 svo hægt er að losna við ruslið. Fjöregg hvetur ykkur til að reyna að flokka eins mikið og mögulegt er.

Gott er að losa ruslið úr plast ruslapokum og setja pokana í endurvinnslu.
ATH. Það verður ekki grill á eftir núna en mögulega gerum við meira í haust.
Við hvetjum fyrirtæki til að taka þátt í deginum og hreinsa í kringum sig.
Skiptingin er eftirfarandi:
Frá Austurlandsvegi í Garð. Auk þess Grjótagjárvegur, Hverfjallsvegur og Dimmuborgarvegur. Umsjón Fjöregg, Landeigendafélag Voga, Slysavarnarfélagið. Mæting við Björk.
Frá Garði að Másvatni. Umsjón Björgunarsveitin, Kiwanis og Akstursíþróttafélag Mývatnssveitar. Mæting við Sel hótel.
Frá Arnarvatni að vegamótum á Öxl og frá Öxl að a.m.k.að Sandvatnsbrekku. Umsjón Kvenfélagið og Menningarfélagið Gjallandi. Mæting við Grímstaðaöxl.
Frá flugvallarvegi að Grímsstaðaöxl. Umsjón Grímungar og Landeigendafélag Reykjahlíðar. Mæting við flugvallarveg.
Frá flugvallarvegi, Reykjahlíðarþorp, gamli vegur frá skóla og upp að Bjarnarborg, austurlandsvegur að Kröfluafleggjara og vegurinn að Jarðböðunum.
Umsjón Íþrótta- og ungmennafélagið Mývetningur og Golfklúbburinn. Mæting við Dyngjuna.
Þeir sem ekki telja sig tilheyra þessum félögum, mætið þar sem þið viljið.

Ef einhverjar spurningar vakna, endilega hafið samband við: Ólafur Þröstur 894 3433
Hreinsum okkar fallegu sveit og eigum góða stund saman.

Fjöregg og Skútustaðahreppur

Annual Clean-up Campaign 2020
Monday 25th of May at 16.30
Every spring the local government organizes picking up garbage around lake Mývatn. It’s a time to be part of our community and help us keep our beautiful area clean.
Please feel free to join any of the teams organized and/or if you have any questions about where to go or what to do, please contact us. Ólafur Þröstur +354 894 3433


Fjöregg and Skútustaðahreppur

https://www.facebook.com/events/2572699632989656/


Athugasemdir