Jólasveinarnir í Dimmuborgum

Hefur þú hitt Jólasveinanna?

Taka á móti gestum í sögustund kl 13:00 alla laugardaga í sumar á Hallarflöt frá og með 20. júní. Nánari upplýsingar hér. 

Allt frá upphafi hafa þau Grýla og Leppalúði búið í Lúdentsborgum og hafa þau alið af sér 13 jólasveina. 

Þegar jólasveinarnir fóru að vaxa úr grasi fannst Grýlu og Leppalúða vera farið að þrengjast um sig í sínum vistaverum og strákana var farið að langa að vera út af fyrir sig. Var því ákveðið að fara í landvinning og finna nýtt heimili fyrir afkvæmin. Leitað var út um allan heim, farið til Finnlands, Grænlands og víðar. En þegar allt kom til alls þá var best að vera í nágrenni við mömmu og pabba og var þá Dimmuborgir tilvalinn staður til að setjast að í. Frá þeirri stundu hafa jólasveinarnir búið í Dimmuborgum og liðið mjög vel með útsýni yfir hina fögru Mývatnssveit. 

Í fyrstu voru jólasveinarnir miklir ærslabelgir og stunduðu það að gera prakkarastrik um sveitir landsins en í seinni tíð hafa þeir róast og eru í dag bestu vinir barnanna. Jólasveinarnir hafa tekið upp þann sið að taka á móti börnum á öllum aldri á aðventunni í Dimmuborgum. Gera þeir það þannig að á ákveðnum tíma eru þeir við hellismunan sinn og heilsa upp á börnin við stólinn sinn inni á Hallarflöt. 

12. desember fara þeir svo að koma til byggða, einn af öðrum og færa góðum börnum gjafir í skóinn. En þeim sem hafa ekki verið góð færa þeir stóra kartöflu. 

Komdu og heimsæktu okkur í Dimmuborgum á milli kl 11:00 og 13:00 frá og með 1. desember til 24. desember. 

18 ára og eldri greiða 1.500kr í Grýlusjóð.