Stefán Jakobsson og Magnús Þór Sigmundsson ásamt Lúðrasveit Þorláksshafnar.
Fyrir ári síðan hélt Lúðrasveit Þorlákshafnar þrenna tónleika í Þorlákshöfn, Hveragerði og Reykjavík með lögum Magnúsar Þórs Sigmundssonar. Sveitin fékk til liðs við sig söngvarann Stefán Jakobsson sem er hvað þekktastur fyrir að syngja með hljómsveit sinni Dimmu til að ljá nokkrum laganna rödd sína en Magnús Þór sjálfur var í hlutverki kynnis og sagði áheyrendum sögur af lögunum og ferli sínum.
Nú hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn og það á Norðurlandi en lúðrasveitina hefur lengi langað að spila þar og verður nú loks af því.
8. júní í Reykjahlíðarkirkju kl 21:00. 2000kr við hurðina, engin posi svo takið pening með!
Visit Mývatn
Your Guide to Mývatn
660 Mývatn
Iceland
info@visitmyvatn.is