Gistiheimili á sveitabæ skammt norðan við Laugar í Reykjadal (3 km), mitt á milli Húsavíkur og Mývatnssveitar og í aðeins 50 km fjarlægð frá Akureyri (um Vaðlaheiðargöng).
Í boði er gisting í fjórum rúmgóðum 2ja manna herbergjum með sérbaðherbergi. Bílastæði, þráðlaust net og morgunverðarhlaðborð innifalið. Það er tilvalið að njóta sveitakyrrðarinnar í Reykjadal þaðan sem stutt er í allar helstu náttúruperlur á Norðausturlandi. Frábær aðstaða til að njóta norðurljósa.
Visit Mývatn
Your Guide to Mývatn
660 Mývatn
Iceland
info@visitmyvatn.is