Classical music at Reykjahlíðarkirkja

Hjarðsveinar og Meyjar halda tónleika í Reykjahlíðarkirkju laugardaginn 17. ágúst kl 16:00. Frítt inn! 

Sigrún Hjálmtýsdóttir -sópran
Anna Guðný Guðmundsdóttir - píanó
Sigurður Ingvi Snorrason - klarínetta

Efnisskráin hverfist í kringum hið þekkta lag eftir Schubert: Hjarðsveinninn á klettinum fyrir sópran, klarinettuog píanó. Klarinettan tjáir bergmálið sem endurkastast þegar Hjarðsveinninn (sópran) syngur yfir fjöll og dali tilað reyna að ná til unnustunnar. Einnig flytjum við fallega rómönsu eftir Schubert fyrir sömu þrjú.Ýmsar hjarðvísur fylgja í kjölfarið, íslenskar og erlendar ásamt nokkrum „blómalögum“ og þessumhluta lýkur á hinu þekkta „La Vie en Rose“ sem Edith Piaf gerði frægt.Klarinettan og píanóið flytja þrjú lög eftir George Gershwin, þar á meðal hið þekkta Summertime. Þá koma tværsyrpur með lögum eftir Jóhann G. Jóhannsson við ljóð eftir Þórarin Eldjárn annars vegar og Halldór Laxnesshins vegar. Þórarinn er ærslabelgur og kann sannarlega að setja saman vísur sem auðvelt er að læra og hlæja að.Laxness á þarna þekkt ljóð eins og Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga.Tónleikunum lýkur á tveimur þekktum slögurum: Over the Rainbow (úr Galdrakarlinum í Oz) og þakklætisóðnum til tónlistarinnar eftir ABBA.