Finndu leiðina til okkar! #NjótumSaman
Norðurljósahöfuðborg Íslands
Svartaborg er í Kaldakinn í Þingeyjasveit. Húsin 6 standa í hlíð með góðu útsýni yfir dalinn og sólsetrið í norðri. Staðsetning er mjög góð þegar kemur að helstu perlum Norðurlands eystra. Mætti þar nefna dagsferðir til að skoða Goðafoss og Mývatnssveit, Ásbyrgi og Dettifoss, Sjóböðin Geosea og hvali á Húsavík, Melrakkasléttu og Akureyri svo eitthvað sé nefnt. Húsin voru opnuð sumarið 2020 og eru fallega hönnuð með þægindi í fyrirrúmi. Einstök hús hönnuð af eigendunum og hönnuðunum Róshildi og Snæbirni sem búa á staðnum á gamla sveitabæ forfeðra Róshildar.
-Aðgengi fyrir fatlaða
-Heitur pottur í öllum húsum
-Þrif innifalin
30 km frá Húsavík
21 km frá Goðafossi
50 km frá Mývatni
47 km frá Akureyri
Norðurljósahöfuðborg Íslands
Visit Mývatn
Mývatnsstofa ehf
660 Mývatn
Ísland
info@visitmyvatn.is