MÝVATNSHRINGURINN 2021

VIÐ KYNNUM TIL LEIKS FYRSTU HJÓLREIÐAKEPPNINA VIÐ MÝVATN: MÝVATNSHRINGURINN 2021!

Búast má við aukinni umferð hjólreiðamanna við Mývatn laugardaginn 29. maí en þá stendur Mývatnsstofa að nýrri hjólreiðakeppni. Mývatnshringurinn 2021 verður ræstur frá Jarðböðunum við Mývatn kl. 9:45 og mun töluverður fjöldi hjólreiðafólks hjóla umhverfis Mývatn. Keppnisleiðin endar í Jarðböðunum við Mývatn og gert er ráð fyrir því að keppninni ljúki um kl 13:00.
Mývatnshringurinn er fyrsta hjólreiðakeppnin við Mývatn en hjólað er á malbiki umhverfis vatnið eða 42.2km alls og er haldið samhliða Mývatnsmaraþoninu sem fer einnig fram sama dag. Keppt er í almenningsflokki og keppnin hentar mjög vel öllum áhugasömum um götuhjólreiðar og við hvetjum eindregið keppnisfólk, fjölskyldur og vinahópa til að hjóla saman þessa stórbrotnu leið.
Mývatnshringurinn er hugsaður sem hjólreiðakeppni fyrir alla í stórbrotnu en samt þægilegu umhverfi. Allir þáttakendur fá skráðan tíma og þátttökuverðlaun. Innifalið í skráningu er einnig aðgangur í Jarðböðin við Mývatn!
Vegalengd: 42.2 km.
Dagsetning: 29. maí 2021
Ræsing: 09:45
Skráningargjald: 7.900,- kr
 
Skráningu lýkur: kl 23:59 þann 28. maí 2021
Hressing í marki og aðgangur í Jarðböðin að keppni lokinni!
SKRÁNING HEFST 27. APRÍL INN Á WWW.NETSKRANING.IS

STYRKTARAÐILAR:
JARÐBÖÐIN VIÐ MÝVATN
LANDSVIRKJUN
MÝFLUG