Velkomin í Mývatnssveit

Mývatn

Mývatnssveitin er æði.......

Mývatnssveit er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins og ber þar margt til. Svæðið er þekkt fyrir náttúrufegurð og fjölbreytni í náttúrufari er mikil og landslag sérstætt, enda mótað af miklum eldsumbrotum.

Mývatn
Mývatn um 37 km2 að stærð og með stærstu vötnum á Íslandi. Það er mjög vogskorið og í því eru um 50 eyjar og hólmar. Meðaldýpi vatnsins er 2,5 m og mesta náttúrulega dýpi aðeins um 4 m. Lífríki Mývatns er einstætt og er nafn vatnsins dregið af þeim aragrúa mýs sem þar er. Talið að þar haldi sig fleiri andategundir en á nokkrum öðrum stað á jörðinni. Þá er þéttasta straumandabyggð jarðar við ofanverða Laxá og húsöndin verpir hvergi annars staðar í Evrópu.

Skútustaðahreppur er hálendasti hreppur landsins og jafnframt einn sá víðlendasti, 4.926 km2. Allir bæir í sveitinni standa í meira en 260 m. yfir sjó.  Sveitin er austust byggða í Suður-Þingeyjarsýslu.  Mörk hreppsins að austan fylgja Jökulsá á Fjöllum frá upptökum að Dettifossi. Að norðan liggja mörkin frá Dettifossi um fjallið Eilíf og áfram til vesturs norðan Gæsafjalla. Að vestanverðu liggja mörk Skútustaðahrepps um Hólasand og eftir heiðunum milli Mývatnssveitar, Reykjadals og Bárðardals og inn að Vatnajökli að sunnan.
Í Reykjahlíð er þéttbýliskjarni en einnig er all þéttbýlt á Skútustöðum þótt ekki sé um eiginlega þorpsmyndun að ræða.


Mynd augnabliksins

_mg_4194.jpg

Auglýsingar

Menningarráð Eyþings
Mýflug
Jarðböðin
Kórastefnan 2010
Hótel Reynihlíð

Teljari

Í dag: 39
Samtals: 16762

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning