Velkomin í Mývatnssveit

Mývatn

Orkugangan 2010

Lengsta skíðaganga landsins .
Buch-Orkugangan er 60 km skíðaganga sem haldin verður laugardaginn 10. apríl kl. 10:00. Hefst gangan við Kröfluvirkjun í Mývatnssveit og lýkur henni í nágrenni Húsavíkur og er þetta lengsta skíðagangan hér á landi og gefur nú stig til Íslandsgöngunnar.
Orkugangan er nú í fyrsta skipti haldin sameiginlega af Húsvíkingum og Mývetningum og er Landsvirkjun aðalstyrktaraðili göngunnar sem fyrr. Gengið verður að mestu um ósnortið land þar sem sjá má margar náttúruperlur sem og svæði sem jarðskjálftar og eldsumbrot hafa mótað og má víða enn sjá merki um þá orku sem býr í þessu svæði, einnig að virða fyrir sér þá leið sem verður notuð til að flytja orku í væntanlega stóriðju við Húsavík og er nafn göngunnar dregið af því. Leiðin verður troðin fyrir þátttakendur og lagt verður spor alla leið. Lítið verður um erfiðar brekkur og er lækkunin á leiðinni einungis um 200 metrar og er það álit margra að fallegri leið er vandfundin. Drykkjarstöðvar verða á 10 km. fresti.
Sama dag verða 20, 10, 5 og 1 km. gengnir í Reykjaheiðinni og hefjast allar göngurnar kl 12. Verður troðin braut fyrir keppendur og fá allir þátttökuverðlaun sem klára.
Sameiginleg verðlaunaafhending og kaffihlaðborð verður svo í Fosshóteli á Húsavík á eftir.

Allar nánari upplýsingar og skráning er hjá Mývatnsstofu í síma 464 4390 eða í netfang orkuganga@visitmyvatn.is.

Hér er hægt að ná í skrár á Garmin sniði

Orkugangan 2007
Orkugangan 2008
Orkugangan 2009
Orkugangan 2010
Hólasandsgangan
7 km. braut í Reykjaheiði
10 km braut í Reykjaheiði

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning