Aðventa í Mývatnssveit
Opnunarhátíð aðventu verður haldin laugardaginn 20. nóvember en þá bjóða jólasveinarnir gestum og gangandi heim í
Dimmuborgir.
Af öðrum föstum liðum á aðventu má nefna;
Laufabrauðsdag Dyngjukvenna sem verður haldinn laugardaginn 4. desember en sama dag kl. 17:00 mæta jólasveinarnir úr Dimmuborgum í sitt árlega
jólabað í Jarðböðin við Mývatn.
Markaðsdagar í húsnæði Jarðbaðanna:
Laugardaginn 27. nóvember og laugardaginn 11. desember
Auk þess verða haldnir fjölmargir tónleikar, jólahlaðborð og fleira skemmtilegt.
Alla daga frá 27. nóvember til jóla er hægt að heimsækja jólasveinana í Dimmuborgum.
Dagskráin verður nánar auglýst í september.
Velkomin í Mývatnssveit, töfraland jólanna.






