Velkomin í Mývatnssveit

Mývatn


Fréttir

Aðventa í Mývatnssveit

Opnunarhátíð aðventu verður haldin laugardaginn 20. nóvember en þá bjóða jólasveinarnir gestum og gangandi heim í Dimmuborgir.
Af öðrum föstum liðum á aðventu má nefna;
Laufabrauðsdag Dyngjukvenna sem verður haldinn laugardaginn 4. desember en sama dag kl. 17:00 mæta jólasveinarnir úr Dimmuborgum í sitt árlega jólabað í Jarðböðin við Mývatn.

Markaðsdagar í húsnæði Jarðbaðanna:
Laugardaginn 27. nóvember og laugardaginn 11. desember

Auk þess verða haldnir fjölmargir tónleikar, jólahlaðborð og fleira skemmtilegt.
Alla daga frá 27. nóvember til jóla er hægt að heimsækja jólasveinana í Dimmuborgum.

Dagskráin verður nánar auglýst í september.

Velkomin í Mývatnssveit, töfraland jólanna.


Fjárréttir haustið 2010

Nú þegar líður að seinni hluta sumars er vert að minna á fjárréttir haustið 2010.

Réttað verður í Baldursheimsrétt sunnudaginn 29. ágúst og í Hlíðarrétt sunnudaginn 5. september.


Úrslit í Mývatnsmaraþoninu 2010

Menn voru léttir á ráslínu í hálfu maraþoni
Úrslit í öllum flokkum Lesa meira

Píslargangan 2010


Nokkrar nýjungar verða í Píslargöngunni í ár Lesa meira

Lok sumars

Nú þegar farið er að síga á seinni hluta sumars er vert að minna á göngur og réttir í Mývatnssveit.

Réttað verður í Baldursheimsrétt, sunnudaginn 29. ágúst og í Hlíðarrétt sunnudaginn 5. september.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning