MÝVATNSHRINGURINN 2024

MÝVATNSHRINGURINN 2024 verður haldinn samhliða Mývatnsmaraþoni og Bikarmóti í Hjólreiðum laugardaginn 25. maí 2024!

Búast má við aukinni umferð hjólreiðamanna við Mývatn laugardaginn 25. maí 2024. Mývatnshringurinn 2024 verður ræstur frá Jarðböðunum við Mývatn kl. 9:55 og mun töluverður fjöldi hjólreiðafólks hjóla umhverfis Mývatn, en á sama tíma fer líka fram Bikarmót í hjólreiðum í samvinnu við HFA, sem verður nánar auglýst síðar. Keppnisleiðin endar í Jarðböðunum við Mývatn og gert er ráð fyrir því að keppninni ljúki um kl 13:00.
Mývatnshringurinn er hjólreiðakeppni við Mývatn en hjólað er á malbiki umhverfis vatnið eða 42.2km. Keppt er í almenningsflokki og eru öll hjól velkomin. Keppnin hentar mjög vel öllum áhugasömum um götuhjólreiðar og við hvetjum eindregið keppnisfólk, fjölskyldur og vinahópa til að hjóla saman þessa stórbrotnu leið.
Mývatnshringurinn er hugsaður sem hjólreiðakeppni fyrir alla í stórbrotnu en samt þægilegu umhverfi. Allir þáttakendur fá skráðan tíma. Innifalið í skráningu er einnig aðgangur í Jarðböðin við Mývatn, hamborgari frá Hótel Laxá og bjór frá Mývatn Öl! Vinningar fyrir fyrstu 3. sætin.
Vegalengd: 42.2 km.
Dagsetning: 25. maí 2024
Ræsing: 09:55
Skráningargjald: 10.900kr fyrir fullorðna og 5.900kr fyrir börn (12-15 ára)
Ath. það má taka þátt á rafmagnshjóli en þau hjól teljast ekki til úrslita.
 
Skráningu lýkur: kl 23:59 þann 25. maí 2024
SKRÁNING HEFST 27. APRÍL INN Á WWW.NETSKRANING.IS

STYRKTARAÐILAR:
JARÐBÖÐIN VIÐ MÝVATN
LANDSVIRKJUN
MÝFLUG
MÝVATN ÖL
HÓTEL LAXÁ